top of page
Pile Of Books

Textalæknirinn

SIGRÍÐUR ÓSK ÓLAFSDÓTTIR

Íslenska: Welcome
Ready to Get Published

Allur pakkinn

Yfirlestur texta

Það sem ég býð upp á er yfirlestur á hvaða gerð texta sem er. Þjónustan inniheldur yfirferð á uppsetningu, innihaldi, málnotkun og stafsetningu. Grunngjald fyrir yfirlestur er 3 kr. orðið.

Screen Shot 2017-05-30 at 18.29.42.png

Vísindamaðurinn

Rannsóknarritgerðir & APA stíll

Vegna reynslu minnar innan sálfræðigeirans sérhæfi ég mig í því að fara yfir rannsóknarritgerðir og notkun APA stílsins. Þessi þjónusta er í grunninn sú sama og lýst er í yfirlestur texta. Þar að auki mun ég benda á galla í aðferðafræði og APA uppsetningu. Allar leiðréttingar eru gerðar í Microsoft Office Word með Track Changes.

Screen Shot 2017-05-31 at 10.57.00.png

Fagmaðurinn

Heimildir í APA stíl

Ég býð einnig upp á djúpa yfirferð á heimildaskrá og tilvísunum í texta. Þetta þýðir að ég leita uppi allar heimildirnar og passa upp á það að þær séu rétt skráðar samkvæmt sjöundu útgáfu handbókar APA. Þessi þjónusta kostar 350 kr. á hverja heimild. Allar leiðréttingar eru gerðar í Microsoft Office Word með Track Changes.

Íslenska: Services
Íslenska: Quote
Working from Home

ÉG MYNDI VINNA ÓKEYPIS... EN ÉG ELSKA MAT!

Íslenska: Work

Um mig

Ég hef unnið sem yfirlesari og aðstoðað við rannsóknir síðan ég útskrifaðist úr meistaranámi í sálfræði haustið 2016. Meðfram því gat ég ferðast töluvert áður en ég settist að í Reykjavík haustið 2018 og hef síðan þá unnið á Landspítala.

1-76.jpg

Nám & starfsreynsla

  • Síðan ég hóf grunnnám í sálfræði árið 2010 hef ég öðlast starfsreynslu í kennslu, rannsóknum, atferlisþjálfun, rannsóknarskrifum, tölfræðilegri úrvinnslu og yfirlestri

  • Ég er með meistaragráðu í heilsu og félagssálfræði frá Maastricht University og í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík

Old Book

Textalæknirinn

Meðfram sálfræðináminu hefur mér fundist fátt meira spennandi en að lesa ritgerðir samnemenda minna og gera athugasemdir við það sem betur má fara (þ.e.a.s. rífa þær í mig). Það sem ég elska við að vera yfirlesari er það að ég er stanslaust að læra um notkun tungumálsins og þar að auki fæ ég innsýn í þau ótal efni sem fólk velur sér að skrifa um. Í rauninni myndi ég líklega stunda þetta þó svo að enginn borgaði mér fyrir það… en til allrar hamingju er fólk tilbúið til þess, sem þýðir að ég á fyrir kaffi og með því meðan ég les yfir.

Typewriter Keys

Spurningar? Athugasemdir? Tillögur? Sendu þær á mig—Ég dýrka uppbyggjandi gagnrýni.

MESSAGE ME

You are welcome to use my e-mail or the form below to contact me with orders and inquiries.

Thanks for submitting!

Íslenska: Contact

SIGRÍÐUR ÓSK ÓLAFSDÓTTIR (SIGRIDUR MAR)

Follow

  • Facebook

Contact

+354 690 6393

Address

Reykjavík, Iceland

©2017 by Sigríður Ósk Ólafsdóttir (Sigridur Mar). Proudly created with Wix.com

bottom of page